snobb bobb bobb
5.11.2008 | 15:08
Ég hef oft velt því fyrir mér hvað það er sem stjórnar verðlagi á list, og hver segir að einn listamaður sé betri (dýrari) en annar. Ekki fer það eftir skólagöngu svo mikið er víst, því barnalegir listamenn með enga skólasögu í listum eru til skýanna hafnir og seljast dýrum dómum líka ma Stórval.
Ég velti þessu fyrir mér því í sumar áskotnaðist mér 2 "listaverk" eftir mann að nafni Jóhannes, annað var með silfurskildi og eiganda þess þakkað vel unnin verk. Sonur minn tók myndir af verkunum og fór með í gallery Fold svona meira að gamni en að okkur dytti í hug að þarna væri einkver vermæti, en viðbrögðin voru vægast sagt undarleg svo ekki sé meira sagt konugreyinu sveldist svo á munnvatninu að lá við köfnun, þetta er algjörlega verðlaust drast sagði hún enda eftir Jóhannes húsamálara og ætti hvergi heima nema í sumarbústöðum hvernig sem hún fann það nú út . En við gátum allavega skemm okkur vel yfir þessu endemis snobbi og komum "listaverkunum" í snarhasti í viðeigandi sumarbústað.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.