Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

slóð:

það vantaði á slóðina áðan hérna er hún rétt: http://web.tickle.com/tests/brain/index_main.jsp

Smile


I am right

eða þannig, tók svona heilatest á netinu og komst að því að ég nota hægra heilahvelið mest, það hlýtur að skýra þessa miklu hreifiþörf og að ég hef aldrei getað lært stærðfræði eða hugsað kassalagað, ég hef gífurlegt ímyndunarafl og minni á við fíl gaman af því. Þeir sem langar til að  testa  sjálfan sig er slóðin: brain_revenge_1


Rauða húsið á Eyrarbakka

sherried_bisqueFórum austur fyrir fjall í dag, fyrst til Þingvalla svo Selfoss og nágreni enduðum á því að borða í Rauða húsinu, afskaplega fallegt veður og logn sem er nýnæmi hér á klakanum, við höfum nokkrum sinni borðað þar og verið ánægð, núna fengum við okkur fiskisúpu sem var góð en það var varla fiskur í henni, en við fengum ábót LoL sem við þáðum og leið mér eins og ábótamanninum í Spaugstofunni.  Einhvað fannst mér veitingastaðurinn hafa dalað sérstaklega þjónustan, kannski er þetta vitleysa í mér en mig langar ekki sérstaklega þangað aftur svo það verður farið annað næst þegar við förum austur.

Gleðilegt sumar

Smile sunAllir í bloggheimum og takk fyrir veturinn, sól í dag og gluggaveður og alger letidagur hjá mér, ætla sko ekki að hreyfa á mér rassgatið nema mér til gleði og ánægju ekkert skyldu einhvað vesen í dag því það er komið sumar hopp og hí hafið góðan dag.

OOOOOOOOOOOO....

Lazy or relaxed Aég er svo löt, hvað er til ráða?  þyrfti að vinna verkefni (ekki í tölvu) en ég nenni því allsekki, ef það væri í tölvu gæti ég alltaf kíkt á blogg og soleiðið af og til en þetta er meira líkamlegt og líka að muna og muna úff, líður stundum eins og ég sé nett þroskaheft og ég kom mér alveg í þetta sjálf Blush ein og óstudd geri aðrir betur. Jæja hélt að það væri komið vor þegar ég leit út um gluggann í morgunn en nei nei éljagangur skal það vera oj og aftur oj fúll á móti í dag Angry og það á að kólna gaman af því . Best að gera einhvað af viti eins og sagt er.

tímaskekkja

i_love_80sÞað er einhver tímaskekkja í hausnum á mér, ég sem er af bítlakynslóðini svokölluðu elska 80's lög, er ekki alveg að skilja þetta sjálf, ekki það að bítlarnir standa fyrir sínu og eru ornir klassik en samt, þetta er áratugurinn sem tískan og hárgreiðslan voru extrím og strákarnir stífmálaðir, alla vega á myndböndum, reyndar komu vídióin þá fram á sjónarsviðið og eignaðist ég mitt fyrsta vídíó 1981 og það stytti mér nú aldeilis stundirnar (milli þess sem ég fylgist með veðrinu LoL ) verandi með litið barn sem ég hélt á allan sólarhringinn og í þessu fámenna byggðarlagi voru ég veit ekki hvað margar leigur.  Hvað með það ég elska 80's lög.

Dagbók

Ég hef skrifað dagbók síðan 1982, já nokkurskonar dagbók hef allar færslur stuttar bara eins og kemst fyrir í lítilli vasadagbók, byrjaði eiginlega á henni til að fylgjast með tíðarhringnum síðan bættist veðrið við, þá átti ég heima út á landi þar sem veðrið skipti miklu máli og allur dagurinn gat farið  í það að gá til veðurs og hvort það yrði flogið þann daginn og við fengið brýnustu nauðsynjar eins og mjólk og brauð, það sem maður gat eitt mikilli orku í þetta, ég var með kóniska stressbólgu í öllum líkamanum og gat varla hreyft á mér hausinn með góðu móti og ekki var það aldurinn sem var að hrjá mig heldur það sem daninn kallar ondt í livet kvíði, stress og þessháttar vandamál.

Jæja þessi dagbókarskrif þróuðust út í það að ég skrifaði það helsta sem ég gerði yfir daginn, en passaði mig á því að þar kæmi ekki fram neitt sem aðrir mættu ekki vita ef bækurnar kæmust í hendurnar á öðrum en mér, ef það var einhvað sem lá þungt á mér skammstafaði ég það jafnan eða gerði ákveðin tákn, það er ansi skondið að lesa þessi skrif eftir öll þessi ár og fatta ekki einusinni hvað  þessar skammstafanir eiga að þýða Smile en þær (dagbækurnar) hafa reynst mér gagnlegar á öðrum sviðum td ef mig langar að vita hvað ég var að gera ákveðinn dag eitthvert árið. En núna kemur bloggið sennileg í staðin fyrir svona gamaldags dagbók. Góðar stundir diary-two

 


Vor ?????

hvenær kemur vorið eiginlega? ég vil geta farið út í gallajakka og léttum skó buhuhuhu Wink ekki eins og lúði með trefil úlpu og vettlinga, ha guð ha hvað segirðu? strax á morgunn, já það er ásættanlegt.

Fór á myndina í gær Mr Bean fer í frí..... hún var alveg ágæt, sömu gömlu taktarnir  hann er sennilega einhverfur með þráhyggju hann Mr Bean, merkilegt hvað maður getur hlegið að þessari vitleysu sennilega merki um vanþroska, en svona er nú húmorinn sem ég hef, bernskur og á köflum fullgrófur fyrir suma Grin Það minnir mig á þegar ég flutti hingað á sínum tíma þá var húmorinn bara fyrir neðan belti þar sem ég er alin upp í beitningaskúrum og frystihúsum og varð að vera fljót til svars ef það átti ekki að skjóta mann í kaf, en hérna í borg óttans hitti ég fyrstu teprunar sem horfðu bara furðulosnar á mig þegar ég opnaði munn hehehehehehe, en ég hef nú lagast mikið síðan þá eða passa betur það sem ég segi nema þegar fólk þekkir mig vel þá er allt látið vaða WhistlingEr búin að vera að æfa mig í dag á verkefni sem ég þarf að skila bráðum svo heilinn í mér er vel steiktur best að hætta þesssu bulli NÚNA

spring_flowers_T1669


Einhvað skrítin síða

en ég er alveg edrú sver það Whistling fliss

Páskarest

imagesÉg er hálf tussuleg í dag, en er búin að vinna "vinnuna" síðan fara að borða Reykjavík pizza company fengum okkur pizzu sem var ágæt en afgreiðslan frekar hæg, 2 afgreiðsludömur báðar erlendar önnur talaði samt íslensku með miklu err hljóði sem er sosum ásættanlegt hin skildi ekki þegar maðurinn bað um pilsner og kom með bjór, en það var ekkert santi maría og heilagur andi núna eins og á kaffi parís um daginn LoL maður má víst vera þakklátur fyrir það.  Ætla síðan að bregða undir mig betri fætinum og fara í bíó í kvöld og sjá mr bean sjálfan og sinna mínu innra hvíta rusli og hlægja eins og mofó, fer svona á 2ja ára fresti í bíó, toppar einhver það nema elliært gamalmenni hehehehe.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

eykjavík pizza company til að fá pizzu sem var ágæt en afgreiðslan frekar hæg og 2 erlendar afgreiðsludömur þar sem önnur talaði ágæta íslensku með miklu err hljóðum sem er alveg ásættanlegt, hin vissi ekki hvað pilsner er og kom með bjór maðurinn gafst upp  á að reyna að koma henni í skilning um að hann vildi fá pilsner, en það var ekkert santi maría og heilagur andi núna eins og á kaffi parís  dagin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband