Akureyri

Ég er ein af þeim sem finnst hrrroðalega leiðinlegt að versla mér föt,ekki það að ég komist ekki í algengar stærðir, heldur bara umhverfið í þessum verslunum og skortur á þjónustu.  Og hvað gerir kona þá þegar það er orðið nauðsynlegt að endurnýja fatalagerinn ?  Audda farið til Akureyris, þá myndast nokkurskonar utanlandsstemming, gist á hóteli engin vinna engar skyldur bara dingla sér.

Og ég get svo sannarlega mælt með þessari aðferð Wink og sérstaklega með fatabúðinni Cristu ( held að það sé skrifað svona ) í göngugötunni þar fékk ég höfðinglegar móttökur þvílík og önnur eins þjónustulund enda konur á besta aldri, ekki tyggígúmisjórtrandi ungviði með lífsleiðan uppmálaðan á andlitinu, enda var kortið straujað feitt Grin uss síðara tíma áhyggjur.  Það var líka farið í leikhús sem nota bene er aldrei gert í bænum og séð hið 100 ára gamla stykki Fló á skinni í nútímabúningi. Heilanum bara kúplað í hlutlausan gír og hlegið í 2 og 1/2 tíma, alveg hreint dásamlegt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnur R. H.

Ég er fædd og uppalinn í þessum verslunarbæ, en ennþá hefur mér ekki dottið í hug að skreppa norður og fata mig upp, geri það kannski næst

Unnur R. H., 26.3.2008 kl. 12:47

2 Smámynd: gua

já get svo sannarlega mælt með því, þegar utanlandsferð er ekki í boði.

gua, 26.3.2008 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband