Fyllibyttur

Þegar ég var krakki var ég dauðhrædd við fyllibyttur, það hefði verið betra að það hefði enst fram á fullorðinsaldurinn.  Í staðinn fékk ég ólæknandi björgunaráráttu mission: björgum fyllibyttunni en það sannast eins og oft áður að það er ekki hægt að bjarga þeim sem vilja ekki láta bjarga sér.  Hversu margar konur hafa ekki "lent í því" eða komið sér í svoleiðis aðstöðu, fullvissar um að engar nema þær séu færar um að koma byttunni á réttan kjöl, lítið vissum við.

Skildu ekki margar konur kannast við þetta, eina konu þekki ég sem náði sér í fyllibyttu þegar hún var komin vel á fullorðnist ár fullviss um að aðeins hún gæti bjargað honum og situr núna á áttræðisaldri uppi með fyllibyttu sem er eignalaus og hefur ekki unnið í mörg ár og hefur bókstaflega lifað á henni alsæll og heldur áfram sinni hegðun i öruggu skjóli hennar, börnin hans sömuleiðis sæl með að hafa barnapíu fyrir karlinn en hennar börn ekki eins sæl sem skiljanlegt er.

Ungu konur (og gamlar líka Smile) hugsið ykkur tíu sinnum um áður en þið gerist björgunarmenn fyrir fyllibyttur. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnur R. H.

Ég held að það séu mjög margar konur í þessum sporum, og gleymum ekki, karlmenn líka. Þeir líka setja sig í það hlutverk að getað bjargað kvenkyns alkahólistum og sitja svo uppi í raun, í  verri sporum en konurnar. Þeir virðast ekki hafa sömu ákveðni sem við höfum og eru þess vegna miklu veikari aðsandendur..Mér bara datt þetta svona í hug

Unnur R. H., 4.4.2008 kl. 08:15

2 Smámynd: gua

já sammála þekki mjög svæsið dæmi um það líka.

gua, 4.4.2008 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband