Færsluflokkur: Bloggar
Fljótfærni
20.2.2007 | 14:52
Bloggar | Breytt 1.3.2007 kl. 23:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það tókst jibbý
20.2.2007 | 12:51
Mér tókst að setja inn mynd þökk sé Gurrí þetta er nú samt hálf klaufalegt en það gekk, þetta á að vera vormynd það er svo mikill vorfíligur í mér besti tíminn á árinu birta og aftur birta verð bara hálf hæ af birtuni, hef örugglega fæðst á vitlausri beyddargráðu sól og hiti eru mitt element hlakka bara til þegar það verður hlýrra hér í framtíðini og ekki orð um það meir.
Bloggar | Breytt 2.3.2007 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur
18.2.2007 | 14:52
Þá er kominn sunnudagur, búin að fara í bakaríið fá mér kakó og kringlu gott bara, fiskisúpa í kvöld og bollur í eftirmat sem húsfreyjan bakaði reyndar í gær bara af því að hún þolir ekki iðnaðarsmjörlíkið sem er í bakaríisdótinu, góður og rólegur dagur öðruvísi en var hér áður fyrr þegar sunnudagur og reyndar laugardagar voru ömulegustu dagar vikunar kvíði og allskonar fylgifiskar sem koma þegar þú býrð með alkahólista og veist aldrei hverju þú getur átt von á og börn sem skilja ekki baun í bala bara líða illa mannskemmandi andskoti þessi fíkn. Get aldrei þakkað nógu vel fyrir það að hafa komist út úr þessari martröð eftir ca 30 ár í helvíti nokkurnvegin heil á sálini en haldin áfallastreitu sem fer dvínandi, ég kynntist nefnilega manni sem er svo sálarlega heill að ég hélt að það væri bara ekki til því, ég kláraði þrautinrar þrjár og drap drekann og vann prinsinn og hálf konungsríkið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
jæha
18.2.2007 | 00:28
Þá er júróvíson búið í bili og viti menn ég varð bara doldið spennt maðurinn minn stuðlaði að því að Eiríkur vann með því að gefa honum öll sín 5 atkvæði og við nánari hlustun held ég að þetta sé þrusugott lag og vel júró vænt. Vonandi verða spekingarnir á sínum stað og nú má Eiríkur áræðanlega ekki vera með, en maður kemur í manns stað.
Og að öðru ég blogga ekki undir nafni af því að ég er svo sjúklega feimin og þoli illa athyggli og svo á ég mér sona fortíðadrauga sem mig langar ekki til að geti fylst með mér, soldið ólíkindatól en ég er alger bloggfíkill og viðurkenni það fúslega meira seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afhommarinn
13.2.2007 | 13:19
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
júróvisjon
11.2.2007 | 14:26
Ég hef alltaf verið júróvísjon aðdáandi og elsssskkkkaaaaa júróvísjon lög en núna held ég að því ljúki vegna alveg óstjórnlega leiðinlegra laga sem hafa verið flutt í undankeppnini, hvernig stendur á því að það er ekki hægt að semja almennileg lög þó það væri ekki nema eitt eða svo? Hvernig voru þá hin sem komust ekki í úrslit, það hlýtur að hafa verið alveg martröð að þurfa að hlusta á þau og kannski eru dómararnir núna í áfallahjálp til að ná sér af ósköpunum fuss og svei bara. Og búningarni eru líka skelfilegir sérstaklega hjá Jónsa og co er Dóra Einars kannski komin á kreik aftur ?(Gleðibankinn) Hvað er að???? akurru þurfa íslendingar alltaf að klúðra öllu? Sú sem á hrós skilið er þulan so sæt og fín og öllum til sóma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einhverntíman verður allt fyrst
10.2.2007 | 23:43
Jæja þá er komið að því að láta slag standa og hella sér út í bloggið, svo er bara að bíða og sjá til hvað ég verð virk í að tjá mig á veraldarvefnum. Mér líður svona hálf skringilega eins og ég sé að tala við sjálfa mig eða þannig hehe vonandi stendur það til bóta segi þetta gott í bili og óska ykkur góðra nætur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrsta bloggfærsla
8.2.2007 | 17:05
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)