Cafe Paris
11.3.2007 | 22:30
Hafið þið komið á Cafe Paris nýlega? ég fór þangað í dag með tveimur vinkonum mínum og þar hef ég ekki komið síðan á síðasta sumri og mæ god, ekki einn þjónn var íslenskur þeir töluðu ensku neima einn sem gat krafsað sig áfram á íslensku, en var greinilega útlendingur sem er sosum gott og blessað þannig lagað. Við vorum 2 komnar á undan og búnar að panta þegar sú þriðja kom. "íslensku" talandi þjónninn kom til hennar og tók niður pöntun og hvarf á braut eins og lög gera ráð fyrir litlu síðar kom hann með matinn hennar sem var heldur meiri en hún gerði ráð fyrir og göntuðumst við með stærðina á matarskammtnum við þjóninn og hlóum við, síðan hældi hún honum fyrir hvað hann talaði góða íslensku, hann hvarf á braut en kom skömmu síðar stillti sér fyrir framan hana gerði krossmark yfir andlitið á henni og fór með þulu : santi domini einhvað og spiritus bla bla hahahahaha við sátum dolfallnar og hvað ? var hann að reka út úr henni illa anda eða er þetta vanalegt á cafe paris að þjónarnir viðhafi slíka tilburði ? veit enhver meira en við ? Ég hallast að því að hann hafi einhvað misskilið það sem við vorum að segja að hann hafi heyrt: Þú er með lítið tippi eða einhvað í þeim dúr og það þola þeir nú illa sona latínó gaurar
Athugasemdir
Ætli maðurinn hafi ekki bara verið yfirkominn af þakklæti fyrir hrós vinkonunnar um að hann talaði góða íslensku?
Jenný Anna Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 14:18
þetta var allt hið furðulegasta hátterni, hann hefði getað þakkað fyrir sig með orðum á hinni góðu íslensku hehe.
gua, 15.3.2007 kl. 20:28
ég mun drífa mig á Kaffi París við fyrsta tækifæri og taka manninn út hm.. ég meina tékka á honum sko!
Jenný Anna Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 21:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.