Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
Jæ-ha
21.5.2007 | 22:02
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur
11.5.2007 | 20:33
og lífið gengur sinn vanagang, og það er lif eftir júróvision það er að segja forkeppnina en aðal eftir + kosningar er lífið ekki bara dásamlegt, og svo verður spennufall eftir helgina. Fjölmiðlar verða að leita á önnur mið heldur en eilífar skoðanakannanir og stjórnarmyndunin eftir sem er þó bót í máli, þannig að það er hægt að trappa sig niður eftir allt adrenalínbústið síðustu vikna. Ég er að hugsa um kjósa Frakkland á morgunn bara af því að mig langar svo til París þangað hef ég einu sinni komið og bondaði þessi ósköp við borgina eins og ég hefði alltaf átt heima þarna eða í fyrri lífi ef einkver trúir á svoleiðis stöff, you never now já hvað vitum við sosem þegar öllu er á botnum hvolft.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dj.........
9.5.2007 | 23:02
fer í taugarnar á mér þegar ég er búin að setja inn færslu og hún sviss-bang fer einkvað út í buskann, drasl og aftur drasl pú pú pú. Kannski ábending frá æðri máttarvöldum um að hætta þessu bulli bara.
Jæja nú er orðið bjart nærri allan sólarhringinn og það finnst mér æðislegt, því ég er alltaf á skjön við venjulegt fólk og sef betur ef það er bjart og dreg frekar frá gluggunum en fyrir hef frekar strítt við svefntruflanir á ævinni og mamma sagði alltaf að það mætti ekki köttur labba framhjá þá væri ég vöknuð, þetta tengist veraldarvaktinni sem ég hef löngum verið á þeas það gæti einkvað gerst ef ég væri ekki vakandi og tæklaði málið hehehe. Og ég sagði mig úr björgunarsveitinni fyrir nokkrum árum það er þessari áráttu að vilja bjarga öllum í kringum mig hvort sem þeir vildu það eða ekki, get því sofið rólega fyrir þessari áráttu minni vitandi að það er einfaldlega ekki í mínum verkahring að redda öllu, til þess höfum við almættið eða það held ég að minnsta kosti
Og annað mig langar til París.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ást
4.5.2007 | 20:39
Ég fór á söngleikinn Ást í gærkvöldi, og það var bara nokkuð gaman og leikararnir áttu góða spretti, áhorfendur voru að mestu ellismellir eins og gefur að skilja enda málið þeim skylt.
Þetta var sérkennileg blanda af proffum og áhugamönnum og á stundum eins og maður væri komin í félagsheimilið í sveitinni, einhvað fannst mér Ómar Ragnarsson virka einkennileg á mig í þessu þögla hlutverki datt það helst í hug að hann hefði verið settur á róandi sona í hita kostningavertíðarinnar svo hann færi ekki alveg yfir um allavega ég fílaði hann enganveginn þarna.
En það var gaman þegar þau sungu gömlu lögin og textarnir pössuðu vel við og eins var gaman af krökkunum
Þau sem stóðu upp úr voru Magnús Ólafsson Theodór Júlíusson og Hanna María, og eins og svo oft áður leystist endirinn upp í væmdi og einhverveginn svona ekki neitt en sennilega átti það að opna fyrir tárakirtlana en ekki virkaði það á mig enda ekki komin á ellismella aldurinn Stig: 2 1/2 stjörnur af 5
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
kærasti
1.5.2007 | 12:04
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)