Dj.........

fer í taugarnar á mér þegar ég er búin að setja inn færslu og hún sviss-bang fer einkvað út í buskann, drasl og aftur drasl pú pú pú.  Kannski ábending frá æðri máttarvöldum um að hætta þessu bulli bara.

Jæja nú er orðið bjart nærri allan sólarhringinn og það finnst mér æðislegt, því ég er alltaf á skjön við venjulegt fólk og sef betur ef það er bjart og dreg frekar frá gluggunum en fyrir LoL hef frekar strítt við svefntruflanir á ævinni og mamma sagði alltaf að það mætti ekki köttur labba framhjá þá væri ég vöknuð, þetta tengist veraldarvaktinni sem ég hef löngum verið á þeas það gæti einkvað gerst ef ég væri ekki vakandi og tæklaði málið hehehe. Og ég sagði mig úr björgunarsveitinni fyrir nokkrum árum það er þessari áráttu að vilja bjarga öllum í kringum mig hvort sem þeir vildu það eða ekki, get því sofið rólega fyrir þessari áráttu minni vitandi að það er einfaldlega ekki í mínum verkahring að redda öllu, til þess höfum við almættið eða það held ég að minnsta kosti Grin 

Og annað mig langar til París. 


Ást

neon-love-grossÉg fór á söngleikinn Ást í gærkvöldi, og það var bara nokkuð gaman og leikararnir áttu góða spretti, áhorfendur voru að mestu ellismellir eins og gefur að skilja enda málið þeim skylt.

Þetta var sérkennileg blanda af proffum og áhugamönnum og á stundum eins og maður væri komin í félagsheimilið í sveitinni,  einhvað fannst mér Ómar Ragnarsson virka einkennileg á mig í þessu þögla hlutverki datt það helst í hug að hann hefði verið settur á róandi sona í hita kostningavertíðarinnar svo hann færi ekki alveg yfir um Grin allavega ég fílaði hann enganveginn þarna.

En það var gaman þegar þau sungu gömlu lögin og textarnir pössuðu vel við og eins var gaman af krökkunum  

Þau sem stóðu upp úr voru Magnús Ólafsson Theodór Júlíusson og Hanna María, og eins og svo oft áður leystist endirinn upp í væmdi og  einhverveginn svona ekki neitt en sennilega átti það að opna fyrir tárakirtlana en ekki virkaði það á mig enda ekki komin á ellismella aldurinn Wink Stig: 2 1/2 stjörnur af 5


kærasti

Var að frétta það í gær að barnabarn mitt væri komin með kærasta , þetta kostaði netta krísu í klukkutíma jedúddamía barnið rétt 15 ára og ég varð að feisa það að tæknilega séð gæti ég orðið langamma, tóku þið eftir langamma, ég sem er ennþá 30 ára og ekki deginum eldri hvernig er þetta hægt !!!! kann ekki beinnt við að fara fram á áfallahjálp þó að þörfin sé brýn og þegar ég spurði hana hvort hún væri ekki alltof ung fyrir kærasta sagði hún einfaldlega nei svo mörg voru þau orð W00t

slóð:

það vantaði á slóðina áðan hérna er hún rétt: http://web.tickle.com/tests/brain/index_main.jsp

Smile


I am right

eða þannig, tók svona heilatest á netinu og komst að því að ég nota hægra heilahvelið mest, það hlýtur að skýra þessa miklu hreifiþörf og að ég hef aldrei getað lært stærðfræði eða hugsað kassalagað, ég hef gífurlegt ímyndunarafl og minni á við fíl gaman af því. Þeir sem langar til að  testa  sjálfan sig er slóðin: brain_revenge_1


Rauða húsið á Eyrarbakka

sherried_bisqueFórum austur fyrir fjall í dag, fyrst til Þingvalla svo Selfoss og nágreni enduðum á því að borða í Rauða húsinu, afskaplega fallegt veður og logn sem er nýnæmi hér á klakanum, við höfum nokkrum sinni borðað þar og verið ánægð, núna fengum við okkur fiskisúpu sem var góð en það var varla fiskur í henni, en við fengum ábót LoL sem við þáðum og leið mér eins og ábótamanninum í Spaugstofunni.  Einhvað fannst mér veitingastaðurinn hafa dalað sérstaklega þjónustan, kannski er þetta vitleysa í mér en mig langar ekki sérstaklega þangað aftur svo það verður farið annað næst þegar við förum austur.

Gleðilegt sumar

Smile sunAllir í bloggheimum og takk fyrir veturinn, sól í dag og gluggaveður og alger letidagur hjá mér, ætla sko ekki að hreyfa á mér rassgatið nema mér til gleði og ánægju ekkert skyldu einhvað vesen í dag því það er komið sumar hopp og hí hafið góðan dag.

OOOOOOOOOOOO....

Lazy or relaxed Aég er svo löt, hvað er til ráða?  þyrfti að vinna verkefni (ekki í tölvu) en ég nenni því allsekki, ef það væri í tölvu gæti ég alltaf kíkt á blogg og soleiðið af og til en þetta er meira líkamlegt og líka að muna og muna úff, líður stundum eins og ég sé nett þroskaheft og ég kom mér alveg í þetta sjálf Blush ein og óstudd geri aðrir betur. Jæja hélt að það væri komið vor þegar ég leit út um gluggann í morgunn en nei nei éljagangur skal það vera oj og aftur oj fúll á móti í dag Angry og það á að kólna gaman af því . Best að gera einhvað af viti eins og sagt er.

tímaskekkja

i_love_80sÞað er einhver tímaskekkja í hausnum á mér, ég sem er af bítlakynslóðini svokölluðu elska 80's lög, er ekki alveg að skilja þetta sjálf, ekki það að bítlarnir standa fyrir sínu og eru ornir klassik en samt, þetta er áratugurinn sem tískan og hárgreiðslan voru extrím og strákarnir stífmálaðir, alla vega á myndböndum, reyndar komu vídióin þá fram á sjónarsviðið og eignaðist ég mitt fyrsta vídíó 1981 og það stytti mér nú aldeilis stundirnar (milli þess sem ég fylgist með veðrinu LoL ) verandi með litið barn sem ég hélt á allan sólarhringinn og í þessu fámenna byggðarlagi voru ég veit ekki hvað margar leigur.  Hvað með það ég elska 80's lög.

Dagbók

Ég hef skrifað dagbók síðan 1982, já nokkurskonar dagbók hef allar færslur stuttar bara eins og kemst fyrir í lítilli vasadagbók, byrjaði eiginlega á henni til að fylgjast með tíðarhringnum síðan bættist veðrið við, þá átti ég heima út á landi þar sem veðrið skipti miklu máli og allur dagurinn gat farið  í það að gá til veðurs og hvort það yrði flogið þann daginn og við fengið brýnustu nauðsynjar eins og mjólk og brauð, það sem maður gat eitt mikilli orku í þetta, ég var með kóniska stressbólgu í öllum líkamanum og gat varla hreyft á mér hausinn með góðu móti og ekki var það aldurinn sem var að hrjá mig heldur það sem daninn kallar ondt í livet kvíði, stress og þessháttar vandamál.

Jæja þessi dagbókarskrif þróuðust út í það að ég skrifaði það helsta sem ég gerði yfir daginn, en passaði mig á því að þar kæmi ekki fram neitt sem aðrir mættu ekki vita ef bækurnar kæmust í hendurnar á öðrum en mér, ef það var einhvað sem lá þungt á mér skammstafaði ég það jafnan eða gerði ákveðin tákn, það er ansi skondið að lesa þessi skrif eftir öll þessi ár og fatta ekki einusinni hvað  þessar skammstafanir eiga að þýða Smile en þær (dagbækurnar) hafa reynst mér gagnlegar á öðrum sviðum td ef mig langar að vita hvað ég var að gera ákveðinn dag eitthvert árið. En núna kemur bloggið sennileg í staðin fyrir svona gamaldags dagbók. Góðar stundir diary-two

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband